Öll starfsemi HL stöðvarinnar fellur niður í dag vegna veðurs. Komin er rauð veðurviðvörun og öllum ráðlagt að vera ekki á ferli.
Lesa meiraFræðsluerindið Að lifa með langvinnan sjúkdóm sem halda átti fimmtudaginn 6.febrúar fellur niður. Fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 13. mars.
Lesa meiraMiðvikudaginn 15.janúar afhenti Vísindasjóður Lungnasamtakanna þrjá styrki við hátíðlega athöfn í húsnæði HL stöðvarinnar í Reykjavík, Hátúni 14. Eftirfarandi hlutu styrki úr sjóðunum : - Guðrún Nína Óskarsdóttir með verkefnið ,,Árangur endurhæfingar skjólstæðinga sem hafa farið í skurðaðgerð vegna lungnakrabbameins. - Karin Kristina Sandberg með verkefnið ,,Aðgengi einstaklinga sem nota sérhæfða heimaöndunarvélameðferð að vistun á hjúkrunarheimili. - Fatima Mandia Labitigan með verkefnið ,,Nurses knowledge, skills and attitude in providing health education on inhaler devices among individuals with COPD and asthma, a cross-sectional study.
Lesa meiraFimmtudaginn 30.janúar kl.14:00 flytur Erla Svansdóttir sálfræðingur erindi um streitulosun og slökun. Verið öll hjartanlega velkomin.
Lesa meiraFimmtudaginn 23.janúar kl. 14:00 flytur Friðný Þorsteinsdóttir sjúkraþjálfari fyrirlesturinn Þjálfun og hreyfing fyrir hjartasjúklinga. Verið öll hjartanlega velkomin
Lesa meiraFimmtudaginn 16.janúar kl.14:00 flytur Karl Konráð Andersen hjartalæknir fyrirlesturinn Hjartasjúkdómar - einkenni, horfur og meðferð. Velkomin.
Lesa meira