Til baka í fréttayfirlit

Næsta fræðsla: Þjálfun og hreyfing fyrir hjartasjúklinga

9/23/26

Fimmtudaginn 24. september ætlar hún María Barbara Árnadóttir sjúkraþjálfari að fræða okkur um þjálfun og hreyfingu fyrir hjartasjúklinga.

Framundan er þétt fræðsludagskrá þar sem fagfólk víðast hvar úr heilbrigðisgeiranum miðlar til okkar upplýsingum sem skipta okkur og aðstandendur okkar máli. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur dagskrána okkar undir hlekkunum, Fræðsla hér efst á vefsíðunni. Vonumst til að sjá sem flesta.