Eliza Reid verndari Lungnasamtakanna afhenti á mánudaginn 15. Janúar 2024 fyrsta styrk úr Vísindasjóði Lungnasamtakanna við hátíðlega athöfn í húsnæði Lungnasamtakanna í Borgartúni 28a. Styrkinn hlaut Jón Pétur Jóelsson nýdoktor við Háskóla Íslands og Landspítala. Jón Pétur vinnur að rannsókn á meðferðarúrræði til að fyrirbyggja og/eða meðhöndla öndunarvélatengdan lungnaskaða í samstarfi við Sigurberg Kárason yfirlækni á gjörgæslu Landspítalans á Hringbraut. Öndunarvélarmeðferð er lífsbjargandi úrræði fyrir alvarlega veika sjúklinga gjörgæsludeilda sem getur þó leitt til alvarlegra fylgikvilla sem nefndur er öndunarvélatengdur lungnaskaði. Skortur er á meðferðaúrræðum til þess að hindra slíkan skaða.Vísbendingar eru um að sýklalyfið azithromycin hafi þekjustyrkjandi og bólgubreytandi eiginleika og snýr rannsóknin að því hvort lyfið geti spornað að einhverju leyti við lungnaskaða vegna öndunarvélarmeðferðar.
VísindasjóðurLungnasamtakanna var stofnaður 2017. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir á orsökum lungnasjúkdóma, forvörnum og meðferð sem bæta munu lífsgæði lungnasjúklinga. Mikilvægur þáttur í því er að vekja áhuga nemenda á heilbrigðissviði á sérhæfingu á sviði lungnasjúkdóma.