Sérhæfð þjálfun

Á HL stöðinni starfa á þriðja tug starfsmanna, læknar, sjúkraþjálfarar og íþróttafræðingur með það að markmiði að hjálpa skjólstæðingum sínum til betra lífs í öruggu og hvetjandi umhverfi.

Beiðni um þjálfun

fréttir

Jólaopnun HL Stöðvarinnar

Föstudagurinn 19. desember er síðasti opnunardagur stöðvarinnar á þessu ári. HL stöðin opnar aftur á nýju ári mánudaginn 5. janúar.

Lesa meira

Jólakaffi á HL stöðinni

Þann 8-10. desember verða starfsmenn stöðvarinnar í sérstöku jólaskapi og bjóða upp á jólakaffi og smákökur eftir æfingu. Endilega gefið ykkur tíma til að setjast niður eftir æfingu og fá ykkur hressingu. Hlökkum til að sjá ykkur. Mánudaginn 8. des hópar: A,R,P,D,C,O Þriðjudaginn 9. des hópar: U,V,J,L2,G,B,H,K Miðvikurdaginn 10. des hópar: F,E,Þ,X,Y,Z,S

Lesa meira

Sérhæfð þjálfun - Þekking - Reynsla

Umsagnir

Vil ekki missa af einum einasta tíma

Síðastliðin 15 ár hef ég notið endurhæfingar hjá HL Stöðinni eftir hjartaáfall. Þar hef ég síðan mætt reglulega og fengið fræðslu og leiðbeiningar. Með þrekprófum er fylgst með getu og árangri. Á HL stöðinni er góð aðstaða og tæki til þjálfunar og frábært starfsfólk. Þar er góður félagsandi þátttakenda og þjálfara sem skiptir máli.

Jóhann B. Steinsson

Vel haldið utanum alla

HL stöðin er sú líkamsræktarstöð sem ég hef stundað frá árinu
2015. Starfsfólk stöðvarinnar er dásamlegt. Það heldur einstaklega vel utan um alla. Hér fær hver einstaklingur að stunda sínar æfingar á eigin forsendum. Við erum hvött áfram af ljúfmennsku, hlýju og mikilli fagmennsku. Ég get ekki hugsað mér betri stað til að stunda líkamsrækt.

Jóhanna O. Sveinsdóttir