Á HL stöðinni starfa á þriðja tug starfsmanna, læknar, sjúkraþjálfarar og íþróttafræðingur með það að markmiði að hjálpa skjólstæðingum sínum til betra lífs í öruggu og hvetjandi umhverfi.
Beiðni um þjálfunFimmtudagurinn 26.júní er síðasti opnunardagur HL stöðvarinnar fyrir sumarfrí. HL stöðin opnar aftur mánudaginn 1.september. Hlökkum til að sjá ykkur aftur í haust. Gleðilegt sumar.
Lesa meiraSíðasti fyrirlestur sumarsins verður fimmtudaginn 19.júní kl. 14:00. Þá flytur Friðný María Þorsteinsdóttir sjúkraþjálfari á HL stöðinni og Landspítalanum erindið Þjálfun og hreyfing fyrir hjartasjúklinga. Verið öll hjartanlega velkomin.
Lesa meiraSíðastliðin 15 ár hef ég notið endurhæfingar hjá HL Stöðinni eftir hjartaáfall. Þar hef ég síðan mætt reglulega og fengið fræðslu og leiðbeiningar. Með þrekprófum er fylgst með getu og árangri. Á HL stöðinni er góð aðstaða og tæki til þjálfunar og frábært starfsfólk. Þar er góður félagsandi þátttakenda og þjálfara sem skiptir máli.
HL stöðin er sú líkamsræktarstöð sem ég hef stundað frá árinu
2015. Starfsfólk stöðvarinnar er dásamlegt. Það heldur einstaklega vel utan um alla. Hér fær hver einstaklingur að stunda sínar æfingar á eigin forsendum. Við erum hvött áfram af ljúfmennsku, hlýju og mikilli fagmennsku. Ég get ekki hugsað mér betri stað til að stunda líkamsrækt.