Á HL-stöðinni starfa á þriðja tug starfsmanna, læknar, sjúkraþjálfarar og íþróttafræðingur með það að markmiði að hjálpa skjólstæðingum sínum til betra lífs í öruggu og hvetjandi umhverfi.
Beiðni um þjálfunÞann 1.apríl næstkomandi fagnar HL stöðin 35 ára afmæli. Í tilefni þess verður boðið upp á veitingar að lokinni æfingu mánudaginn 18.mars, þriðjudaginn 19.mars og miðvikudaginn 20.mars. Hlökkum til að sjá ykkur.
Lesa meiraStarfsfólk göngudeildar kransæða, hjartagáttar og hjartadeildar Landspítalans kom í heimsókn á HL stöðina og kynnti sér starfsemi stöðvarinnar og aðstöðu. Alla tíð hefur verið mikð og gott samstarf á milli HL stöðvarinnar og Landspítala. Það var því einkar ánægjulegt að fá þessa góðu kollega í heimsókn á stöðina til skrafs og ráðagerða. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
Lesa meiraSíðastliðin 15 ár hef ég notið endurhæfingar hjá HL Stöðinni eftir hjartaáfall. Þar hef ég síðan mætt reglulega og fengið fræðslu og leiðbeiningar. Með þrekprófum er fylgst með getu og árangri. Á HL stöðinni er góð aðstaða og tæki til þjálfunar og frábært starfsfólk. Þar er góður félagsandi þátttakenda og þjálfara sem skiptir máli.
HL stöðin er sú líkamsræktarstöð sem ég hef stundað frá árinu
2015. Starfsfólk stöðvarinnar er dásamlegt. Það heldur einstaklega vel utan um alla. Hér fær hver einstaklingur að stunda sínar æfingar á eigin forsendum. Við erum hvött áfram af ljúfmennsku, hlýju og mikilli fagmennsku. Ég get ekki hugsað mér betri stað til að stunda líkamsrækt.